Heimsborgarar

Við ferðumst mikið.
Stundum stígum við upp í flugvél og förum út í heim. Upplifum framandi menningu og víkkum þannig sjóndeildarhringinn.
En stundum leyfum við heiminum einfaldlega að koma til okkar.
Við höfum burrito í matinn. Borðum franska súkkulaðiköku í eftirrétt.
Horfum síðan á margverðlaunaða búlgarska bíómynd fyrir svefninn.
Samt erum við líkamlega bara í Kópavogi.
Þetta hlaðvarp er því ferðaþáttur, en í mjög víðum skilningi. Baldur og Haukur skoða allt það sem tengist öðrum löndum, ferðalögum, menningu, sögu, mat og því sem þeim dettur í hug.
Við ferðumst mikið.
Stundum stígum við upp í flugvél og förum út í heim. Upplifum framandi menningu og víkkum þannig sjóndeildarhringinn.
En stundum leyfum við heiminum einfaldlega að koma til okkar.
Við höfum burrito í matinn. Borðum franska súkkulaðiköku í eftirrétt.
Horfum síðan á margverðlaunaða búlgarska bíómynd fyrir svefninn.
Samt erum við líkamlega bara í Kópavogi.
Þetta hlaðvarp er því ferðaþáttur, en í mjög víðum skilningi. Baldur og Haukur skoða allt það sem tengist öðrum löndum, ferðalögum, menningu, sögu, mat og því sem þeim dettur í hug.
Episodes
Episodes



Jul 18, 2026
#9 „Ofmetið. Mjög langt labb. 1 stjarna.“
Jul 18, 2026
Jul 18, 2026
1 hr 31 min
Ekki einu sinni mestu undur veraldar eru óhult fyrir kvörtunum frá ósáttum ferðalöngum. Kínamúrinn? „Mjög gamall múr og liturinn ekki góður. Ekki fara þangað.“Einnig: örlítil áfangastaðalistagerð, stóra fánalýsingamálið gert upp og sitthvað fleira. Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.
Jul 18, 2026
1 hr 31 min



Jul 3, 2026
#8 Rassinn á Stjána
Jul 3, 2026
Jul 3, 2026
1 hr 23 min
Heimsborgarar etja saman 20 þjóðfánum í nýjum leik, svara nokkrum spurningum úr sal og tækla gríðarlegt hitamál: ferðalög innanlands. Eru þau algjör snilld eða ömurlegt drasl?Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.
Jul 3, 2026
1 hr 23 min



Jun 19, 2026
#7 Vængjaðar vítisvélar
Jun 19, 2026
Jun 19, 2026
1 hr 38 min
Okkur er talin trú um það að flug sé öruggasti ferðamátinn. Staðreyndin er hins vegar sú að það er stórhættulegt að fljúga og hvert skipti sem þú gengur ólaskaður frá borði flugvélar er í rauninni algjört kraftaverk.Spennið sætisólarnar, signið ykkur og takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.
Jun 19, 2026
1 hr 38 min



Jun 5, 2026
#6 Þrjár ferðir til fjár
Jun 5, 2026
Jun 5, 2026
1 hr 25 min
Heimsborgarar flugu út í heim — og svo aftur til baka með öll koffort stútfull af góssi og góðum minningum. Einnig er kynntur til sögunnar nýr dagskrárliður: Útsláttarkeppni þjóðsöngva!Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.
Jun 5, 2026
1 hr 25 min



May 22, 2026
#5 Biðin langa
May 22, 2026
May 22, 2026
1 hr 10 min
Á eldfjallaeyjunni Tanna í Suður-Kyrrahafi hefur hópur fólks beðið í næstum heila öld eftir heimsókn frá dularfullum dáta að nafni John Frum. Eða var það Broom?
May 22, 2026
1 hr 10 min



May 8, 2026
#4 Ófreskjan og einræðisherrann
May 8, 2026
May 8, 2026
1 hr 19 min
Hvað gerir vitfirrtur þjóðarleiðtogi þegar kvikmyndaiðnaðurinn í ríki hans er í niðursveiflu? Jú, hann auðvitað rænir kvikmyndaleikstjóra frá nágrannaríkinu og pínir hann til að leikstýra sjö kvikmyndum í fullri lengd á tveimur árum. Heimsborgarar fjalla um þetta glórulausa plan, sem þér er að sjálfsögðu meira en velkomið að tjá þig um í Heimsborgarar - Umræðuhópur.
May 8, 2026
1 hr 19 min



Apr 24, 2026
#3 Landsleikur!
Apr 24, 2026
Apr 24, 2026
1 hr 37 min
Hvernig verða lönd til? Jú, með slembivali á internetinu auðvitað. Heimsborgarar fara í sinn fyrsta „landsleik“ og reyna að fá úr því skorið hvort landið sé betra – Haukstópía eða Baldland.Taktu þátt í umræðunni á Heimsborgarar – Umræðuhópur.
Apr 24, 2026
1 hr 37 min



Apr 24, 2026
#2 Bobbi í Berlín
Apr 24, 2026
Apr 24, 2026
1 hr 5 min
Þjóðverjar eru þekktir fyrir vandvirkni, verkvit og stundvísi. Einhvern veginn klikkaði þetta samt allt þegar ákveðið var að byggja nýjan flugvöll í Berlín eftir fall múrsins 1989. Baldur leiðir okkur í gegnum söguna af þessu ævintýralega klúðri, sennilega því næstvandræðalegasta í sögu Þýskalands.Taktu þátt í umræðunni á Heimsborgarar – Umræðuhópur.
Apr 24, 2026
1 hr 5 min






