Heimsborgarar

Við ferðumst mikið.
Stundum stígum við upp í flugvél og förum út í heim. Upplifum framandi menningu og víkkum þannig sjóndeildarhringinn.
En stundum leyfum við heiminum einfaldlega að koma til okkar.
Við höfum burrito í matinn. Borðum franska súkkulaðiköku í eftirrétt.
Horfum síðan á margverðlaunaða búlgarska bíómynd fyrir svefninn.
Samt erum við líkamlega bara í Kópavogi.
Þetta hlaðvarp er því ferðaþáttur, en í mjög víðum skilningi. Baldur og Haukur skoða allt það sem tengist öðrum löndum, ferðalögum, menningu, sögu, mat og því sem þeim dettur í hug.

Episodes
Episodes

Apr 9, 2026
#0 Velkomin í heiminn
Apr 9, 2026
Apr 9, 2026
42 min
Heimsborgarar! Hvað er nú það? Í þessum fyrsta þætti, sem við flokkum sem þátt númer núll, ætlum við að gera okkar besta til að útskýra það fyrir ykkur. Það er ekkert víst að það takist, en leyfið okkur að reyna.Annars megið þið líka spyrja að nokkurn veginn hverju sem er inni á Heimsborgarar – Umræðuhópur.
Apr 9, 2026
42 min